Að skipta máli í breytilegum heimi
Að skipta máli í breytilegum heimi
Stefna Ernst & Young byggist á því að leggja alúð við starfsfólkið, viðskiptavinina og samfélögin og liðsinna þeim við að ná hámarksárangri.
Við erum fyrirtæki sem axlar ábyrgð og við yfirvegum vandlega hvernig ætti að fjárfesta í samfélögum dagsins í dag til að tryggja að viðskiptalífið blómgist og bæði við og samfélögin getum þrifist á morgun og um ókomna tíð.
Það færist í vöxt að viðskiptalífið, stjórnvöld og frjáls félagasamtök sameini krafta sína við að stuðla að viðskiptalegum, félagslegum og umhverfisvænum framförum. Hjá Ernst & Young starfa 135.000 manns í 140 löndum og ein besta leiðin til þess er að að leggja okkar af mörkum í þessari viðleitni er að taka þátt í sjálfboðastörfum fólks með þekkingu sem er samræmd um heim allan en tekur jafnframt tillit til staðbundinna aðstæðna og menningar.
Við beinum viðleitni okkar að þremur lykilsviðum sem ríma við viðskiptastefnu okkar og skipta afar miklu máli í umbótum og vexti á fjármálamarkaði.
• Frumkvöðlastarf – að styðja við og fagna sprotafyrirtækjum því þau skapa tækifæri
• Menntun – að þjálfa færni og auka aðgang til þess að tryggja að næsta kynslóð búi yfir þeirri kunnáttu sem þarf til að hafa jákvæð áhrif
• Umhverfisleg sjálfbærni – að lágmarka áhrif okkar á umhverfið
Þetta köllum við höfuðatriðin þrjú.
Til þess að fyrirtæki okkar haldi velli er bráðnauðsynlegt að axla ábyrgð. Sem fyrirtæki getum við aðeins vaxið ef efnahagurinn og samfélagið standa styrkum fótum. Þess vegna verðum við stöðugt að leita leiða til þess að sníða saman það sem við gerum vel og það sem þjóðfélagið þarfnast. Á þann hátt liðsinnum við fólkinu sem vinnur hjá okkur, fyrirtækjunum sem nýta þjónustu okkar og samfélögunum sem við störfum í við að nýta krafta sína til fulls – bæði til skamms tíma og langs.