Að skapa tækifæri í mótbyr
Fjármálakreppan um allan heim hefur gríðarleg áhrif á umhverfið sem fyrirtæki ykkar starfa í.
Fjárfesting á markaði hefur dregist saman og virði eigna rýrnað. Verð á orku og varningi er óstöðugt og breytilegt. Umhverfismál og stjórnmál leggja sitt til að auka þrýsting á viðskiptaumhverfið. Valdabilið milli þróaðra og vanþróaðara landa er að minnka.
Þrátt fyrir fordæmalaus inngrip yfirvalda í því augnamiði að ýta undir neyslu og skapa traust á ný eru flest fyrirtæki að búa sig undir enn erfiðari skilyrði á næstunni.
En þessir erfiðu tímar búa yfir tækifærum – og hnattrænt net fagmanna hjá Ernst & Young getur veitt fyrirtækjum aðstoð við að finna þau. Hvort sem fyrirtækið er öflugt og stendur vel að vígi, er undir álagi eða stendur frammi fyrir erfiðum valkostum, vinnum við með ykkur að því að finna fjárhagslegar, stefnumarkandi og rekstrarlegar lausnir sem bæta greiðslugetu, fjárhagslegan sveigjanleika og hagnað hagsmunaaðila. Við erum til staðar til að aðstoða ykkur við að byggja upp fyrirtæki – bæði til skamms tíma og þegar til lengri tíma er litið.