Að auka gagnsæi, að bæta eftirlit
Heimurinn krefst meira gagnsæis hjá fyrirtækjum og félögum. Fjárfestar vilja hafa aðgang að nákvæmari og mikilvægari upplýsingum um fyrirtæki, viðskipti, markaði og áhættu. Stjórnvöld stefna á aukið eftirlit.
Mikið er rætt um hvernig stjórnunarhættir innan fyrirtækja ættu að þróast. Þær umræður fara fram í ljósi breytinga á lögum og reglum, innleiðingar á alþjóðlegum, reiknisskilastöðlum (IFRS) og aukins aðhalds almennings. Við erum þeirrar skoðunar að víðtæk samræming sé nauðsyn, ekki munaður, á samþættum og innbyrðis tengdum mörkuðum dagsins í dag. Stjórnvöld og staðalsmiðir verða að halda áfram að vinna saman til þess að skapa hnattræna samkvæmni.
Ernst & Young búa yfir víðtækri þekkingu og reynslu í gerð fjárhagsskýrslna og á stjórnunarháttum sem við höfum öðlast á öllum mörkuðum og um allan heim. Þessa færni nýtum við til að styðja ykkur á sviðum á borð við eftirlaunamál, fjárhagsleg verkfæri, beina og óbeina skatta, erlenda gjaldmiðla, dótturfyrirtæki, samstarfsverkefni, birgðir, losun og rýrnun. Hverjar sem þarfirnar eru köllum við til hóp sérfræðinga sem geta leyst flóknustu viðfangsefni með því að beita margreyndri alþjóðlegri aðferðafræði okkar og nýjustu verkfærum og aðferðum við endurskoðun.