Að skapa verðmæti, að stýra hegðun
Á samdráttartímum ætlast fyrirtæki til þess að fjármáladeildir þeirra séu í fararbroddi með traustri fjármálastjórn.
Þetta felur í sér að móta sér staðlaðar aðferðir við að koma auga á leiðir til hagræðingar og sparnaðar. Það felur í sér að bæta kerfi og ferla svo upplýsingar um fyrirtækið séu nákvæmari og greiðlega til reiðu. Og það felur í sér að velta fyrir sér annars konar uppbyggingu á stjórn fjármála, svo sem sameiginlegri þjónustu eða úthýsingu.
Ernst & Young geta unnið að slíku með fyrirtækjum. Við búum yfir þeirri víðtæku reynslu sem skapast við að vinna með mörgum fyrirtækjum í fremstu röð í heiminum og þeim sem vaxa hraðast. Við getum aðstoðað fyrirtæki við að fullvissa sig um að beitt sé árangursríkum aðferðum sem styrkja eftirlit, skapa verðmæti og styðja góða stjórnunarhætti. Til að tryggja að fjármáladeild fyrirtækisins hafi þann sveigjanleika sem nauðsynlegur er til að styðja við breytileg verkefni og viðhalda velgengni í viðskiptum í framtíðinni.