Að standa vörð um framtíðina
Stórfelld ríkisafskipti af fjármálageiranum hafa ef til vill komið í veg fyrir enn meiri hörmungar en mikil óvissa er enn í vændum.
Svo það er bráðnauðsynlegt að skapa sér skipulega sýn á alla áhættu sem þið standið frammi fyrir. Það felur í sér að skilgreina hvar aðaláhættan liggur, meta hversu sennileg hún sé og hvaða áhrif hún hafi á viðskiptin – og mynda sér skoðun á því til hvaða aðgerða eigi að grípa .
Ernst & Young geta veitt stuðning í þessu. Við getum gert áhættumat sem gengur lengra en fjárhagslegt eða lagalegt mat og tekið tillit til þess víðara samhengis sem fyrirtækin starfa í. Við getum gert áætlanir um atburðarás í lykiláhættu fyrirtækisins til þess að fá fullvissu um að áhættustýring sé í samræmi við raunverulega áhættu sem það stendur andspænis. Og við getum aðstoðað við að koma upp árangursríkri vöktun og eftirliti sem gefa fyrr frá sér viðvörunarmerki og gera kleift að bregðast fljótt og vel við.
Þessi stranga og agaða nálgun í áhættustjórnun auðveldar ykkur að standa vörð um framtíð fyrirtækisins – og veitir stuðning við að takast á við áskoranir efnahagslægðarinnar.