Að fá sem mest út úr dýrmætustu auðlindinni
Baráttan um hæfileikafólk hættir ekki á samdráttartímum – hún fer versnandi. Framsýn fyrirtæki beita nýjungum í mannauðsstjórnun sinni til þess að öðlast samkeppnisforskot svo þau verði færari um að halda velli í efnahagslægðinni og leggja sterkan grunn undir efnhagsbata og vöxt.
Þannig að samtímis því að verið er að reyna að finna og framkvæma aðgerðir til að lækka starfsmannakostnað þarf að leita leiða til þess að halda í og rækta hæfileikaríkasta fólkið. Mannauðssérfræðingar okkar geta veitt aðstoð við þetta.
Alþjóðlegur ráðgjafarhópur Ernst & Young veitir mörgum stærstu alþjóðlegu fyritækjum heims ráðgjöf – og einnig þeim sem eru rétt að hefja sókn inn í fyrsta erlenda landið.
Sérfræðingar okkar í frammistöðu og umbunakerfum aðstoða við að setja upp launa- og hlunnindakerfi sem hæfa lykilstarfsfólki ykkar. Við aðstoðum við regluheldni í skattamálum, fylgjumst með breytingum í regluverkinu, sjáum vel um mannauð ykkar um allan heim og bætum stefnumörkun fyrirtækisins. Þannig fæst nauðsynlegur stuðningur við stjórnun á dýrmætustu auðlindinni á átakatímum.