Please note…

You are now on the ey.com Iceland site. To return to the ey.com United States site or other country site, click on the Iceland (English) link on the upper right of this page, and select your preferred country site.

x
Skip to main navigation

Alþjóðlegar lausnir á alþjóðlegum vandamálum - Ernst & Young - Iceland

  • Share

Alþjóðlegar lausnir við alþjóðlegum verkefnum

Ernst & Young er í fararbroddi um allan heim í málum sem varða endurskoðun (Assurance), skatta (Tax), viðskipti (Transactions)  og ráðgjafarþjónustu (Advisory)  . Markmið okkar er að hafa jákvæð áhrif á fyrirtæki og markaði og jafnframt samfélagið í heild.

Greiður aðgangur að alþjóðlegu fagmannaneti okkar

Starfsfólk okkar er 152.000 manns og á því byggist velgengni okkar. Við setjum saman rétta hópinn af fagmönnum úr ýmsum greinum sem hæfir fyrirtækjum ykkar og veljum í hann úr fjölda hæfileikaríkra starfsmanna okkar um allan heim til þess að styðja ykkur við að nýta möguleika ykkar. Við störfum náið með ykkur, gerum okkur glögga mynd af fyrirtækjum ykkar og kappkostum að bera kennsl á mál áður en þau verða vandamál. Við tryggjum að þið hafið greiðan aðgang að fólkinu sem þið þurfið á að halda, hvar í heiminum sem þið þarfnist þess.

Að efla starfsfólk okkar fyrirtækjum ykkar til hagsbóta

Hjá okkur starfar hæfileikaríkt starfsfólk með ýmiss konar bakgrunn. Áhersla okkar á fjölbreytta heild skiptir nú meira máli en nokkru sinni fyrr. Eftir því sem viðskiptamál  verða flóknari og meira ögrandi þurfum við að leita eftir sem allraflestum skoðunum og sjónarmiðum til þess að takast á við þau. Opið starfsumhverfi okkar hvetur til stöðugrar persónulegrar og faglegrar framþróunar. Því þegar starfsfólk okkar eflist og nær árangri njóta fyrirtæki ykkar góðs af því.

Að skipta máli í breytilegum heimi

Ernst & Young hefur að markmiði að styðja viðskiptalegar, félagslegar og efnahagslegar framfarir í öllum löndum þar sem fyrirtækið starfar. Við beitum einstakri sérþekkingu okkar og færni til þess að styrkja undirstöður viðskiptalífsins þar sem við störfum – á þann hátt sem best hæfir þörfum samfélagsins á hverjum stað. Í þessu skyni beinum við kröftum starfsfólks okkar að þremur lykilsviðum sem skipta sköpum við að bæta og stækka markaðskerfi: menntun, frumkvöðlastarfi og sjálfbærni í umhverfismálum

Ernst & Young gefur árlega út gagnsæisskýrslu og má nálgast nýjustu (2011) skýrsluna hér (pdf, 5mb).

 

A market-leading global response to your specific needs.

Back to top